Mest seldu kryddblöndur á Íslandi

   Hafðu samband


Félag Kvenna í Atvinnurekstri

 

 

Kæru viðskiptavinir!

Við viljum nota tækifærið og þakka ykkur fyrir frábær og traust viðskipti á liðnum árum, en við í Skerjaveri höfum leigt út hoppkastala síðast liðin 5 sumur.

Eftir 8 ára harða baráttu við að halda litlu búðinni okkar réttu megin við strikið, í samkeppni við stóru búðirnar, er nú svo komið að við höfum lokað versluninni, en eins og margir vita vorum við í Skerjaveri “kaupmaðurinn á horninu” í Skerjafirðinum. Þess í stað ætlum við að einbeita okkur að framleiðslu kryddblandanna okkar sem landsmenn ættu margir hverjir að þekkja (www.bestalambid.is).

Í framhaldi af þessum breytingum á högum okkar hér tókum við þá ákvörðun að selja þann hluta fyrirtækisins sem snýr að hoppkastalaleigunni okkar. Okkur er sönn ánægja að tilkynna ykkur hér með að BYKO (Leigumarkaður BYKO) hefur keypt okkar sívinsælu tæki.

Þeir hjá BYKO hafa allan hug á því að halda uppi starfslagi okkar, og munu starfsmenn leigumarkaðar BYKO leggja allan sinn metnað í að bjóða frábæra þjónustu til þeirra sem hafa áhuga á að leigja hoppkastala. Einhverjir af okkar fyrrum starfsmönnum í hoppkastalaleigunni munu að öllu óbreyttu hefja störf hjá BYKO með vorinu og leggja þeim gott lið, enda eru þau öllum hnútum kunnug og með margra ára reynslu í hoppkastalaleigunni.

Því viljum við hvetja ykkur til að kynna ykkur verðin og þjónustuna hjá BYKO og ábyrgjumst að vel verður tekið á móti ykkur þegar kemur að því að velja stund og stað fyrir ykkar skemmtun í sumar.

BYKO er með sérstakt símanúmer sem svarað er í fyrir útleigu á hoppköstulum, eða í síma 821-4181.

Takk fyrir frábær kynni á liðnum árum.

Hjördís og Stefán
Skerjaveri